Ég veit það ekkert.....

25.03.2008 17:00:15 / bubbly-

Hætt!

Ég er hætt með þessa síðu.. hún er ótrúlega lame og einhvað.. ég blogga eiginlega ekkert og ég nenni bara ekkert að hafa hana..

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 01:13:47 / bubbly-

Fermd!

Í dag vaknaði ég semsagt í kringum átta að einhvað... hef ekki hugmynd.. það tók mig samt þvílíkt langan tíma að vakna því að um nóttina var ég einhvað klikkuð í alvöru og var alltaf að segja þegiðu og einhvað við sængina mína.. hef ekki hugmynd afhverju en ég var að alltaf einhvað "ææ.. afhverju ertu að þessu.. þegiðu!,, en já það var útaf  því að hún var alltaf að renna niður á gólf og ég var gjörsamlega að drepast úr þreytu því að um leið og  ég vaknaði um nóttina heyrði ég eins og það væri loftárás í gangi eða einhvað því að móður bróðir minn svaf í næsta herbergi og hann vildi ekki loka hurðinni inn til sín þannig að ég heyrði alveg ótrúlega mikið í honum hrjóta haha...!.. já þegar ég vaknaði tók ég mig bara til við að fara í greiðslu.. síðan skutlaði pabbi mér bara og mamma var alveg þvílíkt mygluð hérna heima að hanga með fjölskyldunni (árna frænda.. eygló og hjalla) þegar ég var komin til ásu var erna rut þar nýkomin með flottu greiðsluna og var að fara að láta poka á hausinn á sér.. .það er það sem mér finnst svona fyndið er að stelpur þurfa alltaf að vera að druslast með poka á hausnum útum allann bæ haha! en já.. ég var hjá ásu í svona klukkutíma og 10 mínútur... síðan fórum ég og pabbi bara heim og ég hljóp uppí herbergi og klæddi mig í fallega kjólinn minn.. :haha: anyways.. síðan fórum við bara út í kirkju og fermingarkrakkarnir þurftu að bíða uppi hjá orgelinu því að það var komið svo mikið rok og einhvað bull.. síðan byrjaði athöfnin og við löbbuðum ógeðslega fín inn einhvað.. síðan áttum við að standa við stólana og  einhvað.. síðan þegar við áttum að setjast sast ég á brúnina á stólnum og datt næstum því á gólfið en samt ég ætla að vona að fólk hafi ekki tekið eftir því haha.. síðan hélt athöfnin áfram og ég sat bara í stólnum mínum og síðan heyrðist þvílíkt brak hjá mér og allir horfðu á mig :^) en það var samt alveg allt í lagi... síðan seinna áttum við að borða brauð og drekka vín.. og ég fékk og brauðið var ógeðslega skritið.. það var kannski ekkert það vont en samt ekkert gott.. brauðið var eins og plast frauð og það festist uppí gómnum á manni og það var þvílíkt pirrandi.... en já.. ég nenni ekkert að segja frá restinni af athöfninni.. síðan fórum við heim og mamma ætlaði að vera þvílíkt lúmsk og var alveg "jæja ingibjörg mín, ætlaru ekki að fara upp og taka pakkana af skrifborðinu,, síðan þegar ég kom upp sá ég hudge fatboy á gólfinu með korti á og síðan sagði mamma "lestu á kortið,, og þá snéri ég mig við og ég hélt að það hefði verið kortið af fatboyinu sem var á borðinu og mér sýndist þetta var ótrúlega stórt kort því að undir því var þessi yndislega fartalva og ég öskraði þvílíkt og hoppaði alveg um eins og fífl.. síðan opnaði ég hina pakkana og las á kortin mín.. síðan var veislan mín bara að fara að byrja og einhvað og ég nenni ekkert að skrifa um hana þvi að ég er orðin helvíti þreytt í puttunum... þegar ég kom heim fórum við bara einhvað að fikta í þessari tölvu minni og einhvað og síðan kom fólkið (systkini mömmu, lucy og co) og ég byrjaði að opna pakkana.. ég fékk mjög mikið af flottu dóti en ég bara nenni ekki að skrifa allt sem ég fékk haha :haha: en allavegana fékk ég 152. þúsund kall hihihihhhhi  ótrúlega ánægð :haha: síðan fékk fjölskyldan bara einhvað af matnum sem var afgangs úr veislunni.. síðan fór ég, tinna, vala og erling uppí herbergi og tókum ótrúlega fyndin myndbönd á tölvuna og nokkrar myndir.. ég læt þær kannski á youtube eða einhvað því að þau eru drepfyndin... en ég verð samt að fá einhvað forrit í tölvuna til að klippa þau.. en síðan fóru tinna og þau  þannig að ég fór bara uppí herbergi og er bara búin að vera að downloada msn til að spjalla við fólkið og einhvað og var með hudge quality street dollu við hliðin á mér og var algjör klessa.. núna er ég bara orðin helvíti þreytt og er komin uppí herbergi og er að reyna að segja mömmu að ég sé að blogga djók..!! haha.. en já allavegana.. bææ!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 18:49:36 / bubbly-

13. held ég!

Í dag er ég að skrifa um þrettánda því að ég er ekkert búin að skrifa um neitt og þann dag fór ég í klippingu og síðan seinna var partý..

Morguninn byrjaði á því að ég vaknaði klukkan hálf átta og gerði mig til fyrir skólann..
Skólinn byrjaði á einhverjum tíma sem ég man ekki eftir og í næsta tíma var Grafarþögn.. ég man ekkert eftir þessum tíma heldur og ekkert fyrir hádegi af skólanum.. eftir skóla var handmennt og ég og Erna Rut héldum áfram með töskurnar okkar.. síðan eftir þann tíma voru íþróttir og við fórum í Tarzan leikinn haha.. það var ótrúlega skemtilegt.. í einum leiknum var ég seinust eftir og stefán var hann og hann elti mig eftir bláa dýnu og síðan ýtti han einhvernegin á mig að ég steyptist fram af dýnuni og hann datt líka á gólfið og ég fór að skellihlæja..hihi XD anyways.. í næsta leik var ég hann og ég var gjörsamlega að drepast og var öll sveitt og ógeðsleg þannig að ég fékk mér vatn og einhvað.. síðan þegar það var búið ætlaði ég að fara að baka pizzu með rúnari og eydísi en um leið og við vorum búin að vera þar í smástund og ekki byrjuð að elda þurfti ég að fara í klippingu.. þegar ég var komin til ásu spurði hún mig hvernig ég vildi hafa hárið á mér á litinn og einhvað og ég sýndi henni það bara.. en allavegana það er ekkert gaman að lesa um það þegar ég sat inná hárgreiðslustofu og leiðast.. en allavegana eftir klippinguna var klukkan orðin u.m.þ.b hálf 7 og gerði mig tilbúna fyrir partýið reyndar vissi ég ekkert hvernig skyrtu ég ætti að vera í og slaufu og einhvað en ég fann það út.. síðan fór ég út í skóla og spurði eydísi hvar slaufan hennar væri og hún sagði að þau hefðu ekkert verið búin að ákveða það en rúnar kom samt með skyrtur þannig að við vorum öll í skyrtum... seinni hlutan af kvöldinu vorum við bara að borða, dansa og í e-m leikjum..

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 17:48:24 / bubbly-

Yea!

Jebb.. ég hef nú ekkert verið að blogga neitt undanfarið og mér fannst bloggið sem ég lét á kromka síðuna svo fyndið að ég verð bara að peista það hingað..
 
Jamm...! Semsagt í dag vöknuðum við klukkan 11 eða einhvað... við gistum sko saman.. við ætluðum að hafa how i met your mother marathon haha... en anika var að fara að nota flakkarann og það var einhvað þvílíkt vesen í gangi þannig að við hættum við það en við horfðum samt á wedding daze og heartbreak kid.. sem var mjög gaman.. síðan fórum við bara uppí herbergi að horfa á E!.. síðan sofnuðum við bara einhvað 2 eða einhvað... já síðan vöknuðum við bara... fengum okkur síðan að borða.. og fengum síðan fartölvuna til að vera í að gera einhvað á síðuna en við vorum eiginlega bara inná msn og einhvað.. síðan sagði mamma okkur klukkan 1 að fara að taka til (ganga frá dýnunni sem var á gólfinu og svefnpokanum og einhverju) jájá.. við gerðum það bara.. og gerðum okkur síðan tilbúnar til að fara messu.. og pabbi skutlaði okkur þangað. Þegar við vorum komnar í kirkjuna sátumst við bara hjá Ernu Rut og Marý og byrjuðum að hlusta á Cecil.. síðan var messunni lokið og við vorum á leiðinni heim og þar var hann Eyþór að standa fyrir framan Láruna.. og ég sagði við hann megum við fá súkkulaði bara í djóki sko.. síðan sagði hann bara allt í einu viljið þið vöfflur.. Harpa var nú ekki lengi að svara því og hljóp inn.. síðan spurði hann okkur hvað við vildum fá að drekka og einhvað og var bara að spjalla við okkur... síðan fór ég og harpa bara heim til mín og fengum fleiri vöfflur og vorum bara einhvað að hanga í tölvunni en inná milli fór ég niður að kúra í Val!.. Síðan fóru Svava, Andri og Valur heim og ég og Harpa héldum bara áfram að vera í tölvunni og einhvað.. Síðan fórum við heim til Hörpu að "læra"... þegar við vorum komnar þangað byrjuðum við bara að læra og fengum okkur síðan jógúrtið.. ég var einhvað þvílíkt að kasta mínu upp í loftið og var alveg "hvað myndiru gera ef að ég myndi missa jógúrtið?,, og harpa sagði að hún myndi lemja mig eða einhvað álíka og þá sagði ég bara að ég myndi hlaupa út og skilja samfélagsfræðina mína eftir og segja við kennarann að hundurinn minn hafi étið hana... síðan missti ég jógúrtið og var alveg oó.. og byrjaði að hlaupa út síðan fór ég aftur inní eldhús og var að fara að segja við Hörpu að hundurinn minn hafi ét... og þá kom hún og hoppaði á mig og reyndi að toga mig ofan í jógúrt klessuna sem lá á gólfinu en það heppnaðist ekki og ég þurfti að þrífa hana upp. en allavegana sátumst við bara aftur niður og byrjuðum að læra.. síðan vorum við bara að hlæja að einhverju sem var ekki einu sinni fyndið og einhvað og ég var að hella ofan í mig jógúrti og kafnaði næstum því og hóstaði þvílíkt mikið af jógúrti upp og við vorum að hlæja af því.. haha og á meðan við vorum að hlæja að því kom ógeðslegt kafni rop uppúr mér í miðjum hlátri og við fórum að skellihlæja og ég var næstum því að pissa á mig og hljóp inn á klósett.. síðan sat harpa uppað lausum ofni inná baði og fór aðeins frá honum og hann hrundi á hana og það var þvílíkt fyndið... hún var sko eins og skjaldbaka með hjúds skjöld.. það var ógeðslega fyndið og ég var alveg að kafna.. síðan fór hún út og ég fann ekki klósett pappírinn og einhvað þvílíkt og var endalaust að kalla á hörpu haha.. síðan þegar við vorum þvílíkt búnar að leyta að klósettpappírnum bakvið ofn og einhvað kom í ljós að hann var beint fyrir framan klósettið... það var líka fyndið haha.. síðan fór ég bara heim.. fékk mér pulsu í venjulegu brauði sem var ekkert svakalega gott.. haha og núna sit ég bara og er að hlæja yfir þessu fáránlega bloggi! hahahahahah

- Ingibjörg

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 11:03:21 / bubbly-

Jamm!

Ég hef ekki bloggað í nokkra mánuði núna og ég ætla að byrja að blogga aftur.. :p
En seinna í dag ætla ég að blogga um reykjavíkur ferðina eða það sem ég man af henni.. En núna er ég samt í skólanum og er að stelast að vera í tölvunni í frímínútum..

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 18:14:22 / bubbly-

Heath Ledger er dáinn!!!! NEI!

Ég er sko í þvílíkri sorg... ég vil ekki að hann sé dáinn mig langar þússt að vilja að hann sé svona eins og jesú reis upp á þriðja degi nema ég vil að heath myndi bara vakna í líkhúsinu í dag (það eru 3 dagar síðan hann dó.. reyndar er sko nótt núna eða morgun í Ameríku þannig að það er eiginlega ekki dagur þannig að þetta gæti gerst :D ) og að hann myndi bara hlaupa út og öskra I'm alive og að hann myndi bara ekkert vera dáinn..!!! ég ætla að vona að það gerist á meðan við erum sofandi haha! djöfull væri það samt skemtilegt! ef að það gerist jeijj! :haha: ef að það gerist ekki  NEI! :cry:

 

vona bara að þetta gerist haha! :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 18:49:06 / bubbly-

Nýtt comments dót!

Þarna comment dótið sem að ég lét... það voru svo asnalegar spurningar í því þannig að ég ætla að breyta því aðeins...

1. Hvaða orð lýsir mér best og afhverju?

2. Hvaða kvikmynd mynnir þig á mig og afhverju?

3. Hvaða persóna úr Disneyteiknimynd væri ég og afhverju?

4. Hvað heldur þú að ég muni starfa við í framtíðinni og afhverju?

5. Hvaða persóna væri ég úr Friends og afhverju?

6. Hvaða hljómsveit væri ég og afhverju?

7. Líkar þér vel við mig og afhverju? 

8. Myndiru leyfa mér það ef ég reyndi að faðma þig?

9. Hvaða lag væri ég og afhverju?

10. Höfum við verið bestu vinir, ef ekki myndiru vilja það?

11. Er ég góð manneskja?

12. Viltu vera góður vinur minn eða ertu það fyrir?

13. Þekkiru mig vel, ef ekki viltu þekkja mig betur?

14. Finnst þér ég tilgerðarleg og leiðinleg?

15. Hvernig myndiru lýsa mér?

16. Er ég góð manneskja eða er ég mean?

17. Er ég góður vinur og afhverju?

þetta er þó skárra heldur en listinn sem var fyrr...


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 14:53:31 / bubbly-

19-20 janúar (nóttin)

Eins og þið vitið vorum  við Harpa saman í gær og við vorum saman um kvöldið. Vorum búnar að kaupa þvílíkt mikið af nammi og vorum ekki búnar að borða neitt af því... Síðan kom allt í einu brjálað rok og bara klikkað veður og bréfalúgan var byrjuð að fjúka upp og ég og Harpa vorum búnar að vera að tala um raðmorðingja og einhvað þannig að þetta var ekki alveg rétti tíminn til að koma brjálað rok... allavegana Harpa hljóp upp í rúm og við vorum svoleiðis að drulla á okkur úr hræðslu... síðan var þetta bara einhvað svona og það voru einhverjir snjóköglar að skjótast í rúðurnar og þrýstingur í hausunum á okkur haha 8| síðan ætluðum við að hringja í pabba nema það virkaði ekki alveg því að þau voru úti að borða og greinilega einhvað að djamma því að þegar ég reyndi að hringja 2 eða 3 skiptið kom þvílík tónlist og ég sagði pabba bara að það væri klikkað rok og að bréfalúgan væri að fjúka upp og að það væri allt þvílíkt spúkí að gerast í húsinu... síðan reyndum við að hringja aftur því að það kom þvílík vindkviða og við vorum alveg að springa úr hræðslu... en þá svaraði ekki og við vorum þvílíkt að reyna að hringja.. síðan mundi ég að símanúmerið heima hjá adda og dóru var niðri í eldhúsi og ég og harpa þorðum ekkert að fara þangað nema við hlupum bara niður og niður í eldhús nema við fundum ekki símanúmerið nema aðeins seinna.. og við hlupum upp og lokuðum okkur inní herbergi og hringdum heim til adda og dóru en þá svaraði ekki alveg strax og um leið og við vorum að hringja í adda og dóru tók ég gemsan minn og stimplaði inn númerið hans pabba þannig að það var verið að hringja í báða símana.. síðan svaraði addi og ég spurði hvort að lalli væri þarna og þá sagði hann : "hver er þetta,, og þá sagði ég bara að þetta væri ingibjörg og þá sagði hann það er engin ingibjörg hér og var þvílíkt að miskilja mig... síðan sagði hann að það væri verið að skutla öllum heim útaf veðrinu og þá skellti ég bara á og hringdi í pabba og loksins svaraði hann og sagði að harpa ætti bara að gista hjá mér og við vorum þvílíkt spenntar...

Þegar mamma og pabbi voru komin heim fórum við bara að búa um okkur og einvað en þegar mamma og pabbi voru að taka sig til fyrir svefnin vorum ég og harpa inní herbergi og þá kom klikkuð vindkviða og ég hljóp þvílíkt hratt niður á meðan harpa var þvílíkt sló og ég alveg hlauptu og hún alveg ég þarf að fara á klóstið og á meðan hún var á klóstinu var ég þvílíkt að panikka niðri ein einhvað síðan þegar hún var loksins búin á klóstinu... bjuggum við bara um rúmið og einhvað

þegar við vorum búnar að því fórum við bara að tala saman og einhvað.. en ég ætla ekkert að segja hvað við vorum að tala um.... við vorum sko með kveikt á lampa síðan fór rafmagnið af og það var þvílíkt spúkí... síðan vorum við bara ennþá að tala um bara einhvað síðan kom rafmagnið aftur á en þá slökktum við á ljósinu og héldum áfram að tala síðan sofnuðum við bara klukkan korter í 4...

þegar við vorum vaknaðar var klukkan 5 mínútur í 12 og það var ennþá leiðinlegt veður.. í morgunmatinn fengum við okkur kitkat, snakk og kók.. haha mjög holt... eftir það fórum við að ganga frá niðri í herbergi eftir okkur og síðan fórum við í guitar hero ll og síðan í sitthvora tölvuna og núna erum við með hairspray í gangi og erum bara einhvað að tala með myndinni (haha þvílíkt ruglaðar) núna er mamma tracyar að klessa á hurð haha!

COMMENTA! haha þetta er einhvað gamalt drasl sem að ég fann af gamalli síðu sem ég átti þetta eru frekar fáránlegar spurningar en það er samt alltaf gaman að hafa einhvað svona.. 

1. Hvaða orð lýsir mér best og afhverju?

2. Hvaða kvikmynd mynnir þig á mig og afhverju?

3. Hvaða persóna úr Disneyteiknimynd væri ég og afhverju?

4. Hvað heldur þú að ég muni starfa við í framtíðinni og afhverju?

5. Hvaða persóna væri ég úr Friends og afhverju?

6. Hvaða hljómsveit væri ég og afhverju?

7. Líkar þér vel við mig og afhverju?

8. Finnst þér ég falleg/ur og afhverju?

9. Hefur þú verið hrifin/n af mér og afhverju?

10. Myndiru leyfa mér það ef ég reyndi að kyssa þig á munninn?

11. Myndiru leyfa mér það ef ég reyndi að faðma þig?

12. Hvaða lag væri ég og afhverju?

13. Höfum við verið kærustupar, ef ekki myndiru vilja það?

14. Er ég flirty manneskja?

15. Viltu láta taka kyssumyndir af okkur?

16. Þekkiru mig vel, ef ekki viltu þekkja mig betur?

17. Þér finnst ég tilgerðarleg/ur og leiðinleg/ur?

18. Hvernig myndiru lýsa mér, útlitslega?

19. Er ég góð manneskja eða er ég mean?

20. Elskar þú mig og afhverju?

C you gæs...!!!! haha


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 23:48:10 / bubbly-

Jájá

Í dag vaknaði ég akkurat 2 mínútur í 10 sem var fáránlega snemma fyrir mig því iðulega vakna ég klukkan 1 eða eikkað en allavegana ég vaknaði semsagt á undan mömmu og pabba en samt lá ég bara ennþá í rúminu og reyndi að sofna en það gekk ekkert svakalega vel.. síðan fór ég bara einhvað í tölvuna og einhvað að hanga.. síðan sagði mamma mér að ég ætti að hringja í Hörpu og spurja hvort hún nennti að vera með mér um kvöldið því að mamma og pabbi voru að fara út til Öddu og Dóru að borða mat.. þá hringdi ég bara í hana og hún spurði mig um að vera með sér um daginn og þá fór ég bara að klæða mig og búa um rúmið mitt.. síðan kom harpa...

Þegar harpa kom fórum við í eye toy haha það var nú ekkert svakalega skemtilegt en inná milli fórum við í tölvuna og vorum endalaust að gera einhvað inná síðurnar okkar (ég á mína og harpa á sína og þórdísi).. eftir það fórum við í guitar hero ll en hörpu fannst það ekki gaman þannig að við ætluðum að fara heim til hörpu og fara í hennar leik en neinei ég nennti því ekki... samt fyrir kvöldið fór mamma með okkur út í kaupfélag til að kaupa nammi og gos og einhvað... en við keyptum bara nammi poka.. snakk.. kitkat... bingó kúlur og gos við erum ekki búnar að borða neitt af þessu nema kannski 3 bingókúlur eða e-ð. Þegar við vorum komnar úr kaupfélaginu fórum við í guitar hero og einhvað.. síðan þegar klukkan var orðin einhvað 7 fórum við út í sjoppu að borða og ég fékk mér 2 pulsur og kók og harpa fékk sér eina grænmetissamloku og kók... á meðan við vorum þar kom atli gunnar og ætlaði að bregða mér en ég sá hann í glugganum og snéri mér við og sagði bú haha :haha: síðan keyptum við okkur tyggjó og sleikjóa..

þegar við vorum komnar heim fórum við í sitthvora tölvuna (ég í fartölvuna og harpa í borðtölvuna) og við erum eiginlega bara búnar að vera þannig í allt kveld og horfa á sjónvarpið

og núna er síminn að hringja og þetta var afi hörpu og var að segja henni að koma heim en harpa hringdi aftur og hún ætlar að vera lengur

lengur haha! og klukkan er 3 mínútur í 12


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 18:26:36 / bubbly-

Andskotinn!!!!!!!!

Dagur: Laugardagur 19 janúar                                                                                          

 skap: pisst off!!!!!! :evil:

þetta er líka svona núna! (um mig dótið í dagbókinni) það er bara einhvað að þessu helvíti


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 18:23:34 / bubbly-

19 janúar FOKK!

Ég hata þetta helvítis drasl! ég var að skrifa um mig en samt kemur ekkert millibil á milli þarna hefuru og uppáhalds og þannig en ég ætla bara að pasta þetta hérna svo að þið sjáið hvernig þetta á að vera!

 Um mig!
Nafn: Ingibjörg Lárusdóttir
Nick: Bonga
Aldur: 14 á þessu ári! :D
Afmælisdagur: 17 október..
Stjörnumerki: Vogin
Staður: Seyðisfjörður
Skóli: Seyðisfjarðarskóli
Vinna: Bæjarvinnan í sumar..
Bestu vinir: þeir vita það...
Hjúskaparstaða: lausu
 Áhugamál: vinir, snjóbretti, talvan, sjónvarpið og einhvað fleira...
Mottó: Elskaðu náungann...
 Málning: Jább
Litaðar og plokkaðar augabrúnir: Jább
Hár: Rautt, krullað..
Augu: blágræn..
Hæð: í augnablikinu 165 cm..
Frekknur: Jább
Gleraugu: Neibb
Tattoo: Neibb
Göt: Já 2 en ég held að þau séu gróin..
Fatasmekkur: þægileg föt.. ekkert of snyrtilegt..
Hrifin: ætli það ekki
Í sambandi: neibb
Verið í sambandi: jább
Kysst strák: jább
Ástfangin: neibb
Ertu:
Góða/vonda stelpan: góða held ég :S
Afbrýðissama týpan: Nóbb
Tík: stundum
Þorin: jájá
Myrkfælin: nóbb
Lofthrædd: já í flugvélum
Gelgja: Nei
Málglöð: Já mjög
Langar/stuttar neglur: langar þegar ég er ekki búin að klippa þær lengi... haha
Gáfuð/heimsk: Heimsk
Kæruslaus: Nei já
Róleg/æst: bæði..
Uppáhalds:
Matur: pizza!
Drykkur: Kók!
Mynd: The heartbreak kid
Leikari: Zac Efron
Leikkona: umm...
Litur: svona blár eins og þetta er haha
Lag: mörg
Hljómsveit: Hef ekki hugmynd..
Geisladiskur: umm.. back to basics
Teiknimynd: Tommi og Jenni :D haha
Blóm: vatns liljur
Söngvari: John Travolta nei djók haha
Söngkona: Christina Aguilera
Hlutur: glossinn minn!
Leikur: umm.. bara sims eða e-ð
Hefuru:
flogið í flugvél: ég hef aldrei flogið haha!
sofnað í skólanum:
skrópað í skólanum: nóbb
hatað einhvern: já og ég geri það núna!
farið í straff: nei
fengið hlaupabólu:
grátið þig í svefn: nei
farið á snjóbretti:
farið á skíði:
farið á sjóskíði: nei
séð stjörnuhrap:
valdið ástarsorg: ég hef ekki hugmynd
logið:
læðst út úr húsinu: nei
 farið út í náttfötunum:
Þú finnur mig:
Á klóstinu nei djók haha
Allstaðar því að þetta er svo lítið bæjarfélag.... :/

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 20:30:57 / bubbly-

The 18th of January!

Eins og vanalega á hverjum virkum degi vakna ég klukkan hálf átta eða kannski aðeins seinna, tek mig til fæ mér að borða og fer í skólann..

Í dag í skólanum vorum við í Dönsku prófi mér gekk svosem vel en þegar ég fór að spurja aðra hvernig gekk að þá var ég ekki sú eina sem á kannski eftir að fá 1 haha reyndar allir! meira að segja Jóhann! En allavegana eftir það var Enska :( tvöfaldur tími! sem var reyndar endalaus í hausnum á mér :( eftir það var síðan náttúrufræði nema við glósuðum bara um ljóstillífun og einhvað dót..

Reyndar þegar skólinn var sagði Erna Rut mér að Hanna Sigga væri að fara að koma og að hún ætlaði að bíða fyrir utan skólann svo að það væri surprise fyrir Marý en við vorum að reyna að tefja Marý svo hún myndi ekki fara en Hanna Sigga var ekki og Marý fór með mömmu sinni út í kaupfélag þannig að ég og Erna Rut vorum þvílíkt pisst... en síðan löbbuðum við bara heim..

Ég var bara í tölvunni og einhvað en þá hringdi síminn og það var Harpa að hringja úr kirkjunni og var að spurja hvort ég ætlaði ekki að koma í fermingarfræðslu.. ég fór þá þangað en ég og Jóhann fórum vitlausu meginn þannig að við fórum hinum megin haha!!!! en allavegana við vorum í kirkjunni sjálfri og Cecil talaði við okkur um fötin sem prestar eru í og einhvað...

Síðan fórum við heim og ég samferðaði öllum krökkunum en Erna Rut, Harpa og Emil fóru á þurrablótsfund en Jóhann átti að fara nema hann hefur ekki farið á neinn þurrablótsfund liggur við.. en allavegana ég og marý vorum bara að samferða heim og hún spurði mig hvort við gætum horft saman á eurovision saman.. en þá myndi hún borða minna eða meira um daginn man ekki hvort það var.. því hún ældi seinast og þurfti að fara heim.. ælan var ógeðsleg og svört og lyktin var ógeðsleg! og ég sagði bara jájá haha..!!

Þegar ég var komin heim fór ég bara í tölvuna og einhvað síðan kom mamma heim og einhvað.. síðan hringdi síminn og það var Solla frá bókasafninu og sagði að ég þyrfti að fara að skila ER ÉG BARA FLATBRJÓSTA NUNNA og hún var að búast við því að ég myndi koma með hana eftir 5 daga en neinei ég hljóp bara strax niður á bókasafn.. þannig að það var bara búið.. þegar ég var komin til baka fór ég bara í tölvuna og í clondike eða hvað sem hann heitir í ipodnum mínum.. síðan var ég bara ennþá í tölvunni og að horfa á sjónvarpið..

síðan fóru mamma og pabbi á einhvað drasl út í skóla til að sjá einhvað svona Hello Mr. President sjónvarp með myndavél til að sjá annað fólk í því og tala við það.. og á meðan var ég bara hér að gera það sama gaman..! not! síðan sendi ég pabba sms um að það vantaði brauð og kavíar.. síðan komu þau heim en því miður var keyptur vitlaus kavíar :cry: en það er í lagi ég borða hann bara ekki hehe...

síðan byrjaði mamma að gera pizzu og einhvað en þá var einhver leiðinleg mynd í sjónvarpinu og ég hafði ekkert mikið að gera nema að bulla bara einhvað í tölvunni.. síðan var  pizzan tilbúin og nammi hún var ótrúlega góð nema ég er að fara að æla núna því að ég borðaði svo mikið af henni að það var ekki eðlilegt! ohh!

núna er ég bara að reyna að laga síðuna mína og er að blogga en bless!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 20:12:02 / bubbly-

Veit!

Ég veit að ég hef ekkert verið að blogga mikið en ég ætla núna að fara að taka mig á, láta myndir (ef að ég kann það haha) gera einhvað um mig en ég get samt ekki látið aukahluti því að það er einhvað bilað... En já ég er semsagt að fara að taka mig til í blogginu... ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 14:03:48 / bubbly-

Jólin! (24-27)

Jájá.. sorry að ég hafi ekkert bloggað um jólin en núna ætla ég að skrifa um allt sem gerðist..

Aðfangadagur: Ég vaknaði og fór bara einhvað að gera og síðan tók ég eftir því að það var bara kominn snjór.. síðan klæddi ég mig nú bara í venjuleg föt og svava, andri og valur komu og við vorum bara einhvað tala saman inní stofu og leika við val.. síðan fengum við jólagrautinn jeijj!! en svava vann möndlugjöfina sem að var jólasveina stytta og málningarbudda...

síðan biðum við bara þangað til að "jólasveinarnir" kæmu til að sjá viðbrögðin á val þegar hann sæi "jólasveinana" síðan komu þeir (in case there is a baby reading this... símon ólafsson and gauti were playing the santa's haha) ;) og valur fékk sportacus kall (íþróttaálfinn) og ég fékk singstar pop hits.. (my parents asked me if i wanted a gift from the santa's and i just said yes otherwise i would not get a gift) og ég fékk singstar pop hits :haha: eftir það fóru bara allir að hanga og gera einhvað og fór að horfa á sjónvarpið og leika við val og einhvað.. síðan fóru svava, andri og valur heim og allir fóru í sturtu (ég fór reyndar í freyðibað;) og gerðu sig fína.. ég fór í sparifötin og málaði mig síðan fórum við í kirkjuna.. nenni ekkert að vera að lýsa henni neitt.. en árni fór ekki með okkur (hann var heppinn)

síðan fórum við út í bíl og ég var að frjósa því að ég var bara í pilsi og leggings og ég og svava þurftum að sitja aftur í í köldum leður sætum á meðan mamma og pabbi voru með þvílíkt mikið af hita (líka undir rassinum).. :frown: en það var samt í lagi

þegar við vorum komin heim (andri og valur voru já lillý og bogga) var hamborgarahryggur í ofninum og ég fór bara upp í herbergi að gera einhvað.. síðan kom matur og nammi oooo ég elska hamborgarahrygg (svínakjöt) :P

eftir það fór ég upp í herbergi í smástund og andri og valur komu síðan fórum við að opna pakkana! síðan fórum við bara að gera einhvað.. síðan fóru valur, svava og andri heim og við fórum að bulla einhvað með afmælisgjafirnar og svo fórum við að sofa..

Jóladagur: við vorum bara í einhverri leti þangað til að við fórum í bíltúr og enduðum heima hjá svövu, andra og val.. ég man samt ekki alveg hvað við fórum að gera.. þetta var bara svona letidagur einhverneginn.. síðan fórum við heim og borðuðum afganga af svíninu og síðan fórum við bara einhvað að horfa á sjónvarpið og einhvað..

2 í jólum: mig minnir að árni geir fór til halldóru að hitta foreldra hennar og síðan hefðu þau komið.. mig minnir að allir hafi bara verið að hanga og taka sig til og einhvað síðan komu Lucy, Arnar, Tinna, Bladur, Erling og Vala.. í mat til okkar.. það var hangikjöt nammi!!!!!! síðan var ís í eftirrétt og allir fóru bara ð eta og fá sér konfekt og einhvað síðan fór ég, tinna, vala og erling að horfa á hairspray.. (fékk hana í jólagjöf) síðan voru allir bara einhvað að tala saman og einhvað.. síðan var þetta bara allt búið og ég man ekki hvað gerðist... haha!!

 

Heyrumst ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 23:56:23 / bubbly-

Þorláksmessan! <3

Jájá í dag var þorláksmessa og ég vaknaði einhverntíman því að svava ætlaði að koma að lita og plokka á mér augabrúnirnar.. ég fór í sturtu og einhvað og síðan byrjaði ég bara aðeins að leika við val.. en því miður var Valur svo fúll að við þurftum að fara heim til svövu svo andri gæti verið með val á meðan hún litaði mig..

þegar við vorum komin þangað fór ég bara aðeins að leika við val og einhvað síðan kom að vondu stundinni :cry: .. reyndar ekki strax fyrst þurfti svava að lita mig og síðan kom plokkunin 8|  :( HJÁLP! en það var samt í lagi þegar svava var búin.. síðan ákvað hún bara að kreista nefið á mér í leiðinni... vil ekkert vera að lýsa því neitt :$ haha

síðan voru svava andri og valur að fara út í kaupfélag en ég sagðist bara ætla að fara heim þannig að þau skutluðu mér en þá voru mamma og pabbi ekki heima þannig að ég fór bara í tölvuna síðan hringdi ég í pabba og hann sagði að þau væru í skötu hjá ólu lomm... jájá.. (þegar þau voru komin heim var ótrúlega vond lykt af þeim) síðan byrjaði ég bara að hlusta á tónlist og lagðist upp í rúm síðan voru mamma og pabbi bara komin heim

síðan gerðist einhvað þar á milli síðan fórum við að ná í árna geir og halldóru jibbí!! :D                  ég og pabbi fórum uppá egilstaði og í leiðinni hljóp ég inní bt og keypti afmælisgjöfina hans pabba.. reyndar vissi hann hver hún væri..

síðan vorum við bara komin á flugvöllinn og við vorum búin að bíða við vitlausa hurð og halldóra og árni voru hinum megin í húsinu en við vorum ekki lengi að fara þangað..

síðan fórum við bara heim til halldóru því að þau ætluðu að skiptast á gjöfum og einhvað og við vorum bara þar í doldin tíma síðan var halldóra bara eftir með mömmu sinni og pabba og ég pabbi og árni geir lögðum af stað heim.. þegar við vorum komin heim var bara pizza í ofninum og svava valur og andri voru komin.. síðan fóru þau í einhvað svona knúsi dæmi og velkominn heim... síðan var pizzan tilbúin og allir byrjuðu að borða hana með bestu list síðan fóru svava andri og valur eftir smá tíma og við fórum að skreita jólatréð jibbí samt lá ég nú bara í sófanum að leika mér með kúlurnar haha

síðan fóru ég og pabbi bara að pakka inn gjöfinni til árna geirs frá halldóru.. jájá

 

þá er þetta blogg bara búið og núna eru akkurat 5 mínútur í aðventudag (semsagt jólin) :D 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 4073
Klukkan
RSS tengill
Skoðanakannanir niðurstöður!